Sparnaðarráð
Bæta má orkunýtni án aukakostnaðar, hér eru tíu ráð sem kosta ekkert en geta dregið verulega úr orkurkostnaði heimila:
-
Lækka innihita niður í 20°C
-
Slökkva alveg á raftækjum, ekki skilja þau eftir í biðstöðu
-
Hafa glugga lokaða nema við gagngera loftun
-
Ganga eða hjóla styttri vegalengdir
-
Fylla ávallt þvottavél og uppþvottavél
-
Hafa lok á pottum og pönnum og þekja alla helluna
-
Setja gluggatjöld fyrir glugga að næturlagi
-
Vistakstur með mjúkum akstri og réttum loftþrýsting í dekkjum
-
Ekki byrgja ofna með húsgögnum eða gluggatjöldum
-
Fara í sturtu frekar en bað