Bannað að reisa kolaorkuver

Stjórnvöld á Nýja-Sjálandi hafa lagt fram lagafrumvarp um að bannað verði á næsta áratug að reisa orkuver, sem knúin eru með lífrænum orkugjöfum svo sem kolum og olíu.Frumvarpið gerir einnig ráð fyrir því, að komið verði á markaði með losunarheimildir vegna gróðurhúsalofttegunda. Um 65% af raforku, sem notuð er á Nýja-Sjálandi, eru nú framleidd í orkuverum sem nota endurnýjanlega orku, aðallega vatnsorkuverum, en einnig eru vindorkuver og jarðvarmaver. Umhverfissamtökin Grænfriðungar fögnuðu frumvarpinu í morgun og sögðu að Nýsjálendingar hefðu tekið forustu í notkun endurnýjanlegrar orku.

heimild: mbl.is