Hreinn rafbíll frá Toyota 2012

Toyota mun sýna rafbíl, lítinn borgarbíl, byggðan á IQ á Detroit bílasýningunni í mánuðinum. Þeir staðfestu jafnframt að slíkur bíll færi í framleiðslu 2012. Þó ótrúlegt megi virðast þá komast fjórir í sæti í þessum litla bíl, en IQ bensín útgáfan sem þegar er kominn á markað í Japan hefur notið mikilla vinsælda. Toyota tilkynnti jafnframt að 500 bíla floti af fyrstu Prius tengiltvinnbílunum yrði settir á göturnar í ár þar af 150 í USA.  Bifreiðarnar verða notaðar til að fínpússa tæknina fyrir frekar fjöldaframleiðslu. Nú er bara að vona að einhverjir slíkir komi til Íslands.