Góð einangrun húsnæðis er forsenda þess að hægt sé að halda orkunotkun til hitunar í lágmarki. Nýir þéttilistar í dyrum og gluggum er afar ódýr lausn og dregur verulega úr hitatapi húsa. Talsverður kostnaður fylgir því að bæta einangrun húsa en slíkar aðgerðir borga sig í sumum tilfellum, t.d. samhliða öðru viðhaldi. Ef endurnýja þarf gler þá borgar sig að setja upp filmugler sem hefur mun betri einangrunareiginleika en hefðbundið gler. Í eldri húsum getur oft verið hagkvæmt að bæta einangrun í þaki.
Orkusetur hefur sett upp þrjár gagnvirkar reiknvélar sem aðstoða húseigendur við að átta sig á þeim orkusparnaði sem fylgir slíkum framkvæmdum.
Ein reiknivélin reiknar út orkusparnað við endurglerjun. Notendur velja fyrst veðurstöð næst þeim og síðan stærð gluggaflatar, óskainnhita og glergerð fyrir og eftir breytingar. Reiknivélin gefur upp orkusparnað. Smelltu á eftirfarandi slóð til að nálgast reiknivélina:
Önnur reiknivél metur orkusparnað vegna nýrrar klæðningar. Virknin er svipuð, notendur velja fyrst veðurstöð næst þeim og síðan flöt útveggja, óskainnhita, byggingartímabil og að lokum þykkt nýrrar einangrunar. Reiknivélin gefur síðan upp orkusparnað vegna klæðningarinnar og hægt er að reikna fyrir eitt ár eða fleiri. Smelltu á eftirfarandi slóð til að nálgast reiknivélina:
Þriðja reiknivélin reiknar út mögulegan sparnað sem fæst með bættri þakeinangrun. Þar velja notendur veðurstöð og setja inn fermetra undir þaki. Reiknivélin áætlar orkusparnað miðað við þykkt steinullar sem bætt er við. Smelltu á eftirfarandi slóð til að nálgast reiknivélina:
Hlutverk Orkuseturs Orkustofnunnar er að stuðla að aukinni vitund almennings og fyrirtækja um skilvirka orkunotkun og möguleika til orkusparnaðar.
Verkefni Orkuseturs eru einnig á sviði nýrra orkugjafa og gerð fræðsluefnis.
Copyright © 2023 Orkusetur.is