Orkusetur veitir Hertz viðurkenningu

Orkusetur hefur veitt bílaleigunni Hertz viðurkenningu fyrir að bjóða upp á visthæfa bíla í flota sínum. Mörg þúsund bifreiðar í eigu bílaleiga eru á vegum landsins og vega þungt í eldsneytis- og útblástursbókhaldi þjóðarinnar.  Að auki keyra ófáir ökumenn á fyrrverandi bílaleigubifreiðum. Það er því býsna mikilvægt að reyna hliðra innkaupum hjá bílaleigum í átt til meiri eldsneytisnýtni. 

Orkusetur setti fram samgöngustefnu á dögunum þar sem m.a. var komið inn á bílaleigubíla. Þar segir:

"Þegar leigðar eru bifreiðar, bílaleigu- eða leigubifreiðar, skal ávallt leitað þjónustu fyrirtækja sem bjóða upp á bifreiðar knúnar vistvænum orkugjöfum og/eða visthæfum bifreiðum með útblástursgildi undir 120 CO2g/km.  Ávallt skal óskað eftir slíkum bifreiðum nema sérstakar aðstæður kalli á stærri bifreiðar."

Það var því kærkomið að frétta að til væri bílaleiga sem mætti þessum kröfum.  Hertz býður upp mjög frambærilegar bifreiðar í tveimur flokkum sem standast kröfur um útblástursgildi og að auki geta menn prófað vetnisbifreiðar sem gefur fólki einstakt tækifæri til að prófa akstur án jarðefnaeldsneytis og útblásturs.