Ísland gæti innan skamms orðið nær óháð erlendum orkugjöfum
samhliða komandi fjöldaframleiðslu á rafmagns- og tengil-tvinnbílum
Stefnumarkandi fundur bílaframleiðenda og orkufyrirtækja í Reykjavík í
september
Stærstu bílaframleiðendur heims, helstu orkufyrirtæki Norðurlanda og
leiðandi alþjóðleg fyrirtæki, stofnanir og einstaklingar í rafvæðingu
samgangna koma saman í Reykjavík átjánda og nítjánda september næstkomandi
til að ræða komandi byltingu í rafmagnssamgöngum á næstu fimm árum.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, er verndari ráðstefnunnar Driving
Sustainability, alþjóðlegs vettvangs fyrir orkulausnir í samgöngum og mun
opna hana klukkan 09:05 að morgni fimmtudagsins 18 september.
Hátt settir stjórnendur bílaframleiðendanna Toyota, Ford, og Mitsubishi munu
á ráðstefnunni veita innsýn í tæknilausnir sem miða að sjálfbærum samgöngum
og munu standa neytendum til boða frá næsta og þarnæsta ári. Stærstu
orkufyrirtæki Norðurlanda, Vattenfall í Svíþjóð og Dong Energy í Danmörku,
vinna nú hörðum höndum að innleiðingu rafmagns í samgöngum, og munu þau
skýra ráðstefnugestum frá áætlunum sínum. Hækkandi olíuverð, hröð þróun í rafhlöðum og hátækni leiðir þessa byltingu.
Volvo og Saab eru í samstarfi við Vattenfall um innleiðingu tengil-tvinnbíla
í Svíþjóð, en þeim bílum má stinga í samband og aka tugi kílómetra á
rafmagni áður en hefðbundin bílvél tekur við. Renault-Nissan samsteypan er
hins vegar í samstarfi við Dong Energy, stærsta orkufyrirtæki Danmerkur um
innleiðingu rafmagnsbíla og rafhlöðuskiptistöðva þar í landi ásamt
bandaríska fyrirtækinu Better Place. Þá munu yfirmenn Mitsubishi Heavy
Industries í Japan fjalla um hlutverk bifreiða í sjálfbærum orkuinnviðum og
Mitsubishi Motors kynna rafmagnsbílinn MiEV en fjöldaframleiðsla á honum
hefst á næsta ári.
Hinn heimsþekkti svissneski flugkappi og geðlæknir Dr. Bertrand Piccard mun
deila framtíðarsýn sinni á hvernig fersk hugsun og nýjar hátæknilausnir geta
rutt brautina fyrir sjálfbærar samgöngur. Dr. Piccard er mikill
ævintýramaður, var fyrstur manna til að fljúga í kringum hnöttinn í loftbelg
fyrir nokkrum árum og sigraði þá frumkvöðulinn Richard Branson sem hrapaði á
sínum loftbelg í Sahara eyðimörkinni. Piccard vinnur nú að Solar Impulse
verkefninu sem gengur út á að fljúga í kringum jörðina á sólarorkuknúinni
flugvél árið 2011.
Solar Impulse verkefnið byggir á endurnýjanlegri orku, ofurléttum efnum,
nýjustu gerð líþíum rafhlaðna og gríðarlega sparneytnum rafmagnsmótorum.
Talið er að samskonar tækni muni umbylta bílaframleiðslu heimsins á næstu
árum.
“Ef marka má stærstu bílaframleiðendur heims mun framboð á venjulegum
fjölskyldubílum sem geta ekið 150-200 kílómetra á einni rafhleðslu aukast
hraðar en flesta órar fyrir á næstu fjórum árum. Þessi þróun felur í sér
gríðarstórt tækifæri fyrir Ísland til að nálgast 100% sjálfbærni í
orkumálum, bæta þar með viðskiptajöfnuðinn, og lækka rekstrarkostnað
bifreiða fyrir almenning að minnsta kosti þrefalt.” segir Teitur Þorkelsson,
framkvæmdastjóri Framtíðarorku ehf., skipuleggjanda ráðstefnunnar, sem
vinnur að innleiðingu vistvænna samgangna á Íslandi í samstarfi við
einkafyrirtæki, sveitarfélög og opinbera aðila.
Margskonar rafmagnsfarartæki verða til sýnis og reynsluaksturs á
ráðstefnunni. Þar má nefna rafmagnsbíla, -mótorhjól, -vespur, -reiðhjól og
ýmis önnur óhefðbundin rafmagnsfarartæki.
Af öðrum ræðumönnum á ráðstefnunni má nefna Bill Dubé, framleiðanda
Killacycle, kraftmesta rafmagnsmótorhjóls heims sem fer úr 0-100 kílómetra
hraða á innan við einni sekúndu, Össur Skarphéðinsson, Iðnaðarráðherra, og
Þórunni Sveinbjarnardóttur Umhverfisráðherra. Þá mun Geir H. Haarde,
Forsætisráðherra hleypa vistakstursátaki ríkisstjórnarinnar af stokkunum
ásamt fulltrúum Landverndar, Toyota, VÍS og Orkuseturs og keppa við þá í
vistakstri að viðstöddu fjölmenni.
Þátttakendur ráðstefnunnar koma frá 11 löndum heims auk Íslands, þar á meðal
Sviss, Japan, Bandaríkjunum, Svíþjóð, Danmörku, Tékklandi og Kína. Þá hafa
alþjóðlegir fjölmiðlar sýnt efni hennar mikla athygli og meðal annars munu
Sky News og bandarískir kvikmyndargerðamenn vera á staðnum.
Framtíðarorka ehf, skipuleggjandi ráðstefnunnar, er þekkingarfyrirtæki sem
einbeitir sér að ráðgjöf til stjórnenda orku-, samgöngu- og
fjármálafyrirtækja. Einnig veitir fyrirtækið ráðgjöf til bæjarfélaga og
opinberra aðila og tekur að sér innleiðingu verkefna í vistvænum samgöngum.
Framtíðarorka stofnaði til Driving Sustainability ráðstefnunnar á síðasta
ári og kom því þá m.a. til leiðar að Toyota Prius tvinnbíl var breytt í
fyrsta tengil-tvinnbílinn á Íslandi. Niðurstaða Driving ´07 var skýr: Hlutur
rafmagns sem orkugjafa í samgöngum mun aukast hratt á næstu árum og
tengil-tvinnbílar koma á almennan markað á árunum 2010-2012. Markmið
Framtíðarorku ehf. er að Ísland verði fyrsta land í veröldinni sem er 100%
sjálfbært í orkumálum.
Reykjavíkurborg, Landsbanki og Icelandair eru gestgjafar Driving
Sustainability ´08. Auk þeirra eru nokkur framsýnustu fyrirtæki Íslands úr
bíla- og orkugeiranum bakhjarlar ráðstefnunnar; Toyota, Orkuveita
Reykjavíkur, Mitsubishi, Orkusjóður og N1, sem nýverið kynnti áætlanir sínar
um uppbyggingu fjölorkustöðva um allt land. Ráðstefnan hefur frá upphafi
verið studd af Iðnaðarráðuneyti, Samgönguráðuneyti og Umhverfisráðuneyti auk
Sænska Sendiráðsins á Íslandi.
Þeim sem hafa áhuga á þessum viðburði er bent á: www.driving.is
Nánari upplýsingar:
Teitur Þorkelsson, framkvæmdastjóri Framtíðarorku, teitur@driving.is GSM:
897 1469
Vinsamlegast athugið:
Ræðumenn koma og fara á mismunandi tímum. Ef óskað er eftir viðtali við
tiltekna ræðumenn áður en ráðstefnan hefst, vinsamlegast hafið samband við:
Berglind Johansen: berglind@driving.is GSM: 861 2070