Orkusetur hefur veitt Sjálfsbjörg viðurkenningu fyrir umhverfislega ábyrgð í vali á vinningum í jólahappdrætti sínu. Það er mikil ábyrgð fólgin í því að velja bíl fyrir notendur. Val á bifreið er ein allra stærsta umhverfisákvörðun einstaklinga. Með því að hafa bifreið á vinningaskrá er í raun verið að velja bifreið fyrir vinningshafa og því mikilvægt að slík bifreið sé sem umhverfisvænust.
Með því að hafa rafbíl í fyrsta vinning er Sjálfsbjörg að stíga mörg jákvæð skref. Með slíkri ákvörðun er verið að stuðla að nauðsynlegum framtíðarorkuskiptum í íslenska bílaflotanum. Einnig fá rafbílar góða kynningu sem raunhæfur kostur í íslenskum samgöngum og mögulega vinnur einhver einstaklingur rafbílinn sem ekki hafði slík kaup á stefnuskrá sinni. Vonandi verður þetta val Sjálfsbjargar öðrum happadrættisútgáfum til fyrirmyndar.