Náttúru og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs verða að þessu sinni veitt fyrir orkusparnað með aukinni tækni. Verðlaunin sem eru 350.000 danskra króna, eða jafnvirði rúmra 4,5 milljóna íslenskra króna, eru veitt fyrir norræna framleiðslu, uppfinningu eða þjónustu sem stuðlar að orkusparnaði.
Verðlaunin eru veitt fyrirtæki, stofnun, samtökum eða einstaklingi (til að mynda uppfinningamanni eða fræðimanni).
Framleiðslan, uppfinningin eða þjónustan getur verið allt frá stórum kerfum niður í lausn á einstöku vandamáli en hana á að vera hægt að nýta alls staðar á Norðurlöndum. Allir geta sent inn tilnefningu til verðlaunanna.
Frestur til þess rennur út 25. apríl n.k. Dómnefnd skipuð fulltrúum frá öllum norrænu ríkjunum og sjálfsstjórnarsvæðunum þremur velur verðlaunahafa.
Á síðasta ári var þema umhverfisverðlaunanna sjálfbært og umhverfisvænt bæja- og borgarumhverfi. Þá komu verðlaunin í hlut sveitarfélagsins Albertslund í Danmörku.
Heimild: mbl.is